Velkomin í Reykjavík Bruggfélag

Þetta snýst allt um bjórinn

Reykjavík Bruggfélag (RVK Brewing Co.) handverksbrugghús varð til af hreinni og einfaldri ástríðu fyrir góðum bjór. Eftir að hafa starfað í mörg ár í fjármálageiranum í New York komst stofnandi okkar að sinni sönnu ástríðu; góður bjór. Og breiða út boðskapinn um góðan bjór á Íslandi. Í því skyni var RVK Bruggfélag stofnað árið 2017. Fyrstu bjórarnir komu á markað 2018 og höfum við síðan gert yfir 100 mismunandi bjóra í endalausri vegferð okkar að gæða handverksbjór.

Sagan af handverksbjór á Íslandi er frekar stutt. Sagan okkar er enn styttri, þó við höfum náð að áorka miklu á þessum stutta tíma. Við lögðum upp með að skrifa nokkra af næstu köflum í bjórsögu Íslands. Hráefnin eru öll hér. Ástríðan er öll hér.

Vertu með! Við hlökkum til að fá ykkur í heimsókn til okkar! Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að sjá meira.

www.rvkbruggfelag.is